Dagur 29

Vá long time no written sorry!!!

Ég er búin að vera svaka busy í skólanum og í Fitness Boxinu mínu, en ég er búin í því öllu! Sumarfríið er byrjað og ég er búin í þessum 2 vikum í FB og þær voru æði, hefði reyndar ekki getað verið lengur, maður þreytist svo að taka strætó í 1,5 tíma fyrir og eftir tímann!

En ég ætla að byrja að gera æfingarnar bara heima, fyrir utan boxið, ég veit ekki hvernig það fer, en þetta verður allavega hálftíma æfing 3svar í viku. Ástæðan fyrir því að ég er að gera þetta er að ég finn að líkaminn minn er að breytast við þessar æfingar og maginn minn er næstum því alveg sléttur, ég er búin að léttast núna bara allt í einu og er svakalega svakalega ánægð!! Held að vöðvanir sem ég fékk séu að gera efnaskiptin mín hraðari!

Ég var semsagt 62,2kg í morgun! :D Ég var komin upp í sirka 64,6kg á einum tímapunkti! En rokkaði oftast milli 63,2-63,7kg, bömmer ég veit! En loksins komin niður úr 63,? tölunni sem var ERFITT og ég er svaka fegin!

Skal reyna að vera dugleg að blogga núna, by the way ég er byrjuð í ökutímum!!!!! Það er æðislegt, fyrsti tíminn var í gær og svo fer ég í annan tímann núna á eftir klukkan 14

http://www.istockphoto.com/file_thumbview_approve/2099984/2/istockphoto_2099984_apple_and_measurement_tape.jpg

Sérstakt EUROVISION blogg

Vá við vorum æði!!! ÆÐI  Eða réttara sagt, þau voru æði!!

Þetta var superfun, ætla að fara að lesa allar hinar umræðurnar!! Bæææ

Dagur 7

Jæja, í gær féll ég um leið á súkkulaði-bindindinu mínu!! Jahá svona er ég .. en ég morgun ætla ég að byrja í bara súkkulaðibindindi, svo fækka ég hinu kannski seinna.. ég má semsagt borða allt annað en súkkulaði, og þá meina ég engar súkkulaðikökur, kex eða súkkulaði ís, NATA!!

Ég ætla í sund í kvöld líka, synda smá og hreyfa mig er reyndar ekki byrjuð á þessum kvöldgöngutúrum ennþá, en meiningin er reyndar að hreyfa mig bara í 30 mínútur á hverjum degi svona extra við allt labbið þegar ég labba um bæinn á daginn haha :)
Réttast væri nú að fá sér sumarvinnu hjá póstinum og bera út póstinn … *hugs* ehh kannski næsta sumar!

En það er komið fínt veður núna, dreg kannski systur mína með mér í sund í kveld :)
Mataræðið var alls ekki spes hjá mér í dag allavega hingað til :/

Morgunmatur: Súrmjólk (eplaogperu létt) + finn crisp með osti
Nesti: Ávextir, ab-drykkur og 2 finncrisp með osti
Hádegi: Smá súpa og 2 brauðbollur
Kl. 4: Salatbar + McFlurry!                 JÉBB ÞARNA FÓR ÉG MEÐ ÞAÐ!

Svo er ég ekkert búin að éta síðan .. en það er kvöldmatur á eftir, ekki alveg búin að ákveða með hann
Ekkert meira í bili, ég mun samt þurfa stuðning þegar ég er komin lengra í þessu súkkulaðibindindi (SúkkB) (SB)
Bæjó

http://www.ezthemes.com/previews/h/homdonutdt.jpg

Dagur 6

Hæ, ég heiti SuperBarbie og ég er sykurfíkill!

Núna klukkan 3 byrjar meðferðin mín, ég ætla að byrja á meðferð í súkkulaði vegna þess að það er mín versta fíkn! Ég má heldur ekki borða jógúrtrúsínur, ekkert súkkulaði, engar súkkulaði kökur, búðinga eða neitt! Ég má hinsvegar borða hlaup og lakkrís á laugardögum, en svo hætti ég með það seinna :)

Ég mun þurfa allan ykkar stuðning!! Alveg í botn vegna þess að ég er komin niður á botn!! Afvötnun virkar ekki fyrir mig, ég dó næstum eftir 3 daga án súkkulaðis!!

Ég vona að þessi súkkulaðimeðferð hafi áhrif á vigtina, en ég sé bara til .. ætla að byrja að fara í göngutúr á hverju kvöldi svona hálftíma eftir kvöldmat, þannig að klukkan sirka 7-8 fer ég í hálftíma - klukkutíma gönguferð, sama í hvaða veðri það er!

Þetta eru mín tvö markmið fyrir maí mánuð =)
Heyrumst

http://www.kakawachocolates.com/images/cup-of-chocolate.jpg

Dagur 5

Okey .. fékk mér nammi í gær :( skamm en ég má fá nammi á laugardögum þannig að ég hef þetta bara sem nammidaginn minn .. ekkert nammi í dag semsagt!!
Ég ætla að fara í göngutúr núna eftir smá, ég veit nú reyndar ekki hversu kalt er úti og ég er hjá ömmu og er illa klædd, haha fór bara út í bíl á peysunni um daginn og pældi ekki í neinu öðru en að drífa mig af stað.
Niðurstöðurnar úr vigtinni minni eru komnar!!!!! :O
Ég var 63,3 kg!!!! ARG og GARG

Jæja, 300gr+
Vonandi verður næsta vigtun betri .. en samt ömurlegt, ef ég missi þá þessi 300gr í þessari viku þá er eins og ég hafi sóað 2 vikum!! Jæja ég ætla að ná að verða 62,? í næstu viku! Ég verð dugleg að hreyfa mig, og borða hollt ..
Heyri í ykkur :)

SuperBarbie

Dagur 3

O ó!

Vigtunardagur á morgun! Ég hlakka til að sjá hvernig það fer, ég er ekki búin að vera að passa vel upp á mataræðið, en ég er ekki búin að borða nammi undanfarna 3 daga, sko ég er fíkill!
Fékk mér reyndar smá ís um daginn, en hann var hvítur ..  en ég er samt búin aðhreyfa mig alveg rosalega mikið, ég held að á degi eitt labbaði ég í klukkutíma, degi 2 labbaði ég í 3 tíma og í dag labbaði ég í sirka klukkutíma og hoppaði gasalega mikið á trampólíni!! :O rosalega gaman skal ég segja ykkur, og stórhættulegt ég er marin út um allar lappir hahah

En það var þess virði, bara að passa sig!

Ég set inn blogg á morgun hvernig vigtin fór og ég ætla að mæla mig á morgun líka held ég, ef ég nenni að vakna svona snemma annars mæli ég á laugard.
En á laugardaginn má ég fá nammi, fæ mér samt bara heilsubar held ég ábyggilega en það er bara jógúrrúsínur og svona sem ég fíla, mér finnst súkkulaðið í hnetubarnum vont en alvöru súkkulaði er æði! Fæ mér kannski 2 þannig stk og 2 stk lakkrís og svo hnetubar =)

Gaman að sjá að þið lesið bloggið .. við heyrumst

Dagur 1

Ég var að koma inn, var í frábærum göngutúr. En ég ætla að kynna mig, ég heiti SuperBarbie og er 163cm, ég er búin að missa um 7kg og langar að missa 5kg í viðbót, það er búið að vera erfitt og ég næ þeim ekki af mér, það væri frábært að fá smá hjálp frá ykkur :)

Ég er með vigtunardaga, þeir eru á föstudögum, seinasta föstudag var ég 63kg og ég vona að ég verði eitthvað léttari næsta föstudag. Ég veit að þetta mun koma hægt vegna þess að það eru svo fá kíló eftir, ég er í kjörþyngd og þetta er bara eitthvað sem ég vil bæta mig í, en ég held að málið sé að ég má ekki segja að ég ÞURFI að missa fleiri kíló vegna þess að ég ÞARF þess ekki, en mig LANGAR til þess! Svo er ég líka GÆS! Þannig að þetta ætti ekki að vera neitt mál.

Í gær labbaði ég með vinkonu minni í samtals 3 klst yfir daginn, í dag labbaði ég í sirka 1 klst, ég ætla að hafa það sem markmið að hreyfa mig MINNST 1 klst á dag, það er hægt að fara út í fótbolta eða körfubolta, ég er svakalega mikið fyrir fótbolta og finnst alveg æði að fara út á grasvöll og sparka bolta með einhverri vinkonu :D

Vonandi líkar ykkur bloggið mitt! Ég ætla að vera dugleg að blogga .. svo set ég kannski inn mælingar og fer ef til vill meira eftir þeim. Heyrumst fljótlega!
Kveðja SuperBarbie